Félagi Bynni


Spes...

Er ég var að skoða internetið í kvöld fann ég áhugavert bréf sem skatturinn í Bretlandi hafði sent viðskiptavini sínum sem svar við bréfi sem hann sendi þeim. Ég hef ákveðið að deila þessu bréfi með ykkur!

Dear Mr Addison,

I am writing to you to express our thanks for your more than prompt reply to our latest communication, and also to answer some of the points you raise.

I will address them, as ever, in order.

Firstly, I must take issue with your description of our last as a "begging letter". It might perhaps more properly be referred to as a "tax demand". This is how we, at the Inland Revenue have always, for reasons of accuracy; traditionally referred to such documents.

Secondly, your frustration at our adding to the "endless stream of crapulent whining and panhandling vomited daily through the letterbox on to the doormat" has been noted. However, whilst I have naturally not seen the other letters to which you refer I would cautiously suggest that their being from "pauper councils, Lombardy pirate banking houses and pissant gas-mongerers" might indicate that your decision to "file them next to the toilet in case of emergencies is at best a little ill-advised.

In common with my own organisation, it is unlikely that the senders of these letters do see you as a "lackwit bumpkin or, come to that, a "sodding charity". More likely they see you as a citizen of Great Britain, with a responsibility to contribute to the upkeep of the nation as a whole.

Which brings me to my next point. Whilst there may be some spirit of truth in your assertion that the taxes you pay "go to shore up the canker-blighted, toppling folly that is the Public Services", a moment's rudimentary calculation ought to disabuse you of the notion that the government in any way expects you to "stump up for the whole damned party" yourself. The estimates you provide for the Chancellor's disbursement of the funds levied by taxation, whilst colourful, are, in fairness, a little off the mark. Less than you seem to imagine is spent on "junkets for Bunterish lickspittles" and "dancing whores" whilst far more than you have accounted for is allocated to, for example, "that box-ticking facade of a university system."

A couple of technical points arising from direct queries:
1. The reason we don't simply write "Muggins" on the envelope has to do with the vagaries of the postal system;
2. You can rest assured that "sucking the very marrows of those with nothing else to give" has never been considered as a practice because even if the Personal Allowance didn't render it irrelevant, the sheer medical logistics involved would make it financially unviable.

I trust this has helped. In the meantime, whilst I would not in any way wish to influence your decision one way or the other, I ought to point out that even if you did choose to "give the whole foul jamboree up and go and live in India" you would still owe us the money. Please forward it by Friday.

Yours Sincerely,
H J Lee Customer Relations
Mörg andsvör (5)
Miðvikudagurinn 28. janúar 2009, kl. 21:10

Jól

Jólin eru komin!

Ég óska öllum flottra pakka og gríðarlegrar hamingju með innihald þeirra!

Ég óska öllum þess að maturinn verði góður og eftirrétturinn himneskur.

Ég óska öllum innilega gleðilegra jóla... megi allir fá það sem þeir verðskulda!
Mörg andsvör (3)
Miðvikudagurinn 24. desember 2008, kl. 17:55

Bréfasendingar, þáttur 1

Rétt í þessu sendi ég póst á hálfan þingheim í þeim tilgangi að minna þá á skyldur sínar.

Fái ég svör við póstinum mun ég greina frá þeim í athugasemdakerfinu eftir því sem þau berast.

Pósturinn var svohljóðandi;

Kæru þingmenn og konur

Ég vil minna ykkur fáu sem fólk hefur enn trú á, á þá skuldbindingu ykkar gagnvart þjóðinni að hafa hag hennar ávallt að leiðarljósi í öllum þeim málum sem þið mælið fyrir eða gegn.

Þetta er ekki rétti tíminn fyrir stolt eða flokkshollustu, þetta er rétti tíminn fyrir djörfung, dug og lítillæti. Þetta er tíminn til að berjast fyrir lítilmagnann!

... þetta er ykkar tækifæri til að komast í sögubækurnar á réttum forsendum, sóið því ekki!


Bryngeir Arnar Bryngeirsson.
Tómstunda og félagsmálafræðinemi við HÍ og verkefnisstjóri hjá ÍTR.



Mörg andsvör (9)
Miðvikudagurinn 26. nóvember 2008, kl. 22:59

Maður vikunnar

Aldrei þessu vant ætla ég að velja mann vikunnar;

Maður vikunnar í þetta skiptið er hinn víðfrægi Eyjavitleysingur Árni Johnsen en hann telur að lög sem meina mönnum sem hafa hlotið skilorðsbundna dóma að sitja í stjórnum fyrirtækja séu meingölluð.

Ég vil taka það fram að mér finnst þau lög sem heimila handhafa forsetavalds að náða samflokksmenn sína vera meingölluð.

Mér finnst einnig frábært hjá Árna að tjá sig um mál þeirra sem minna mega sín og ég skil vel að hann finni til með þessum ólánsmönnum sem hafa leiðst út á viðskiptabrautina.

... en þetta er þó kærkomin tilbreyting frá umræðunni um flóttagöngin frá Eyjum.


Mörg andsvör (18)
Sunnudagurinn 6. júlí 2008, kl. 16:11

Einkavæðing og önnur vitleysa...

Á síðustu árum hefur orðið augljóst að Sjálfstæðisflokkurinn vill einkavæða allt sem hægt er að einkavæða. Flokkurinn vill meira að segja einkavæða tvö heilögustu kerfi samfélagsins, heilbrigðiskerfið og menntakerfið.

Ef heilbrigðiskerfið verður einkavætt þá benda allar líkur til þess að sjúkrasamlög myndu fylgja í kjölfarið, ó þeir fögru tímar sem það myndi færa okkur! Maður gæti brosað út að eyrum í hvert sinn sem maður yrði veikur því það væri eins og happdrætti... ef maður væri heppinn þá væri lækningin við veikindunum innifalin í samningi sjúkrasamlagsins við spítalann og ef maður væri óheppinn þá fengi maður bara að heyra 'tough luck!'.

Ekki má heldur gleyma því að þá þyrftu allir að treysta á sjúkratryggingar og þá væri nú gaman ef fjölskyldusagan innihéldi krabbamein, gigt, geðveiki eða hjartasjúkdóma því þá fengi maður að spara... því maður fengi enga tryggingu!

Einhverjir halda fram að einkavæðing sé hagkvæm fyrir ríkið, en hvað með gróðahugsjón fyrirtækjanna sem myndu sinna kerfinu? Nei, hvernig læt ég? Auðvitað myndu fyrirtækin alltaf veita bestu þjónustuna í hverju tilfelli fyrir sig... það er nú ekki eins og fyrirtæki séu að reyna að græða eins mikið og hægt er!

Staðreyndin er sú að þegar fólk verður að borga fyrir alla þjónustu þá verður fólk hrætt um afkomu sína. Neyðin kennir kannski naktri konu að spinna en hræðsla hvetur fæsta til þróa hæfileika sína til fulls. Mannskepnan nær aldrei þeim hæðum sem hún gæti náð ef hún þarf stöðugt að hafa áhyggjur af afkomu sinni á hverjum einasta degi.

Ég á mér draum, draum um að nýfrjálshyggjuguttarnir öðlist skilning á hagfræði og sjái að einkarekstur og óheftur kapítalismi sé ekki hinn mikli frelsari okkar tíma.


Mörg andsvör (8)
Sunnudagurinn 6. júlí 2008, kl. 02:52

Nostalgía

Nýverið átti ég leið í gegnum gamla hverfið mitt eða það sem kallast í daglegu tali 'smáíbúðahverfið', eins og margir vita þá bjó ég í því hverfi í 23 ár áður en ég flutti í Grafarvoginn.

Eftir því sem ég gekk í gegnum hverfið rifjuðust mörg tímaskeið upp fyrir mér, bæði góð og slæm. Hin áhyggjulausa æska færði nostalgíubros á varir mér, minningarnar frá unglingsárunum voru erfiðari en svo komu minningarnar um síðunglingsárin sem voru all sérstök svo ekki sé meira sagt.

Á göngutúri mínum í gegnum hverfið sá ég handbragð tímans á öllu, tréin voru hærri, húsin minni og göturnar styttri.

Ætli það sé ekki satt sem þeir segja; 'you can never go back'?

Engin andsvör
Föstudagurinn 4. júlí 2008, kl. 23:20

Bryngeirs messa

Af einskærri ástúð minni á mannkyninu og í óumdeildri vizku minni hefi ég ákveðið að 22. Febrúar ár hvert skuli vera Bryngeirs messa.

Daginn skal halda hátíðlega með þeim hætti að fólk skal safnast saman og vegsama mig, fólki er heimilt að gefa mér gjafir á deginum en það er þó alls ekki nauðsynlegt... það má geyma það þar til ég á afmæli.

Þið megið núna blessa ykkur.
Mörg andsvör (21)
Miðvikudagurinn 20. febrúar 2008, kl. 19:10

List

Nýverið var ég úti í Svíaríki og þótti gaman. Á milli þess sem ég sagði 'Den gamla, den fria' og 'Det er kuhl at snusa' nýtti ég tíman vel.

Ég kynnti mér 12 nýjar bragðtegundir af öli, slíkt var að sjálfsögðu einkar ánægjulegt.

Ég borðaði ágætis mat og kíkti á helling af skemmtistöðum og börum, slíkt var líka prýðilegt.

Best af öllu var þó myndasýningin í Kultur Huset, en þar var að finna myndasýningu eftir meistara Nobuyoshi Araki. Flestar hans myndir einkennast af nekt konu hans, þar sem um Japani er að ræða þarf vart að taka fram að nekt er mjög ríkjandi í þessum myndum og sést snótin all oft bundin að japönskum stíl. Það verður að segjast að fólkinu í hópnum þótti sýningin misgóð og var álitið einhverrar ástæðu vegna mun skárra hjá karlpeningnum.

Að lokum gerðist ég brotlegur við nokkrar lögreglusamþykktir (drykkja á almannfæri og þannig) og braut nokkrar óskrifaðar siðareglur þeirra sænsku... t.d með því að vera fyndinn og ópólítískt réttþenkjandi.

Ég gef ferðinni einkunnina 7.5, innihaldið var einkar gott en verslunin með því alslappasta sem ég hef nokkurn tíman orðið vitni að.

Næst verður það annað hvort Tékkland eða rómanskt land, hvað það verður veit nú enginn... nema launafulltrúinn og Bynninn.
Mörg andsvör (4)
Mánudagurinn 14. janúar 2008, kl. 23:45

Jóla hvað?

Kæru vinir,

Hann Hafsteinn hefur vælt hástöfum í lengri tíma yfir því að ég hafi ekkert blókað, hann hefur þó ekkert gert til þess að létta ferlið. Hann hefur hvorki samið texta fyrir mig til að pósta né stungið upp á umfjöllunarefni.

Til þess að létta af þessu endalausa væli dettur mér í hug að fjalla lítillega um jólin.

Í þetta skipti hef ég ákveðið að kaupa jólagjafirnar í kolaportinu og ef einhver vælir undan þeirri staðreynd þá fá sá hinn sami ekki jólagjöf á næsta ári.

Ég ætlast til þess að fólk geri eitthvað álíka sniðugt fyrir mig því annars neita ég að taka við jólagjöfum um næstu jól.

Um jólamatinn gildir það að ef ég fæ matareitrun þessi jólin þá mun ég panta mér flatböku með pepperone og beikoni á næstu jólum.

Verði rok eða rigning um jólin þá mun ég halda jólin erlendis á næsta ári. Verði snjór og frost þá tek ég kannski þátt á næsta ár.

Ef fólk ætlar að versla eins og brjálað í Kringlunni og Smáralindinni á sama tíma og ég þarf að versla eitthvað þá mun ég ekki taka þátt í jólaversluninni á næsta ári.

Jahá, það verða sko gleðileg jól þetta árið!

Mörg andsvör (9)
Föstudagurinn 14. desember 2007, kl. 13:19

Afmæli

Eins og glöggir lesendur vita þá mun ég eiga afmæli síðar í þessum mánuði. Eins og gefur að skilja þá væri slíkt ekki í frásögur færandi nema eitthvað sérstakt kæmi til... og það er einmitt málið.

Hefur einhver tillögu um hvernig væri best að fagna afmælinu?
Mörg andsvör (26)
Laugardagurinn 10. nóvember 2007, kl. 16:39